Aðalvalmynd

Auglýsing

Kominn Heim

27. apríl 2008 klukkan 16:03
Þá er ég kominn aftur til Íslands eftir yndislegan tíma í Sevilla, mikið af nýju fólki sem maður kynntist og frábærir vinir sem maður á vonandi eftir að halda sambandi við
.
Nú er ég bara að undirbúa mig fyrir stúdentspróf og verður veisla líklegast haldin 24. maí næstkomandi ef að allt gengur að óskum. Heimkoman var frábær og það var yndislegt að hitta vini mína og fjölskyldu aftur. Við strákarnir hittumst hérna heima hjá mér á fimmtudaginn og eyddum svo frábæru kvöldi uppá Vinakaffi hjá Geir eftir lokun þar sem hann dældi í okkur frönskum súkkulaðikökum og bjór. Mjög gaman.

Nú þjáist ég af algerum valkvíða, er búinn að flakka á milli svona 1000 sinnum um hvað ég eigi að gera í sumar, mér stendur til boða að fara aftur út í byrjun júní og vinna á Spáni sem fararstjóri. Það er auðvitað frábært tækifæri sem að býðst eflaust ekki oft og gæti opnað mér margar dyr ef ég vildi leggja þetta fyrir mig sem sumarvinnu í framtíðinni, einnig myndi það hjálpa mér að bæta spænskuna mína.
Hinn möguleikinn er svo að vera hérna heima með öllum þeim aragrúa að fólki sem mér þykir vænt um og vinna á golfvellinum í Borgarnesi og svo hugsanlega á Vinakaffi á kvöldin og um helgar. Einnig mjög góður kostur þar sem í sumar munum við vinirnir allir vera hér með tölu, það er eitthvað sem hefur ekki gerst lengi og mun eflaust ekki gerast aftur miðað við allt það flakk sem er á okkur. Þannig að ég veit bara ekki hvað ég á að gera, stundin nálgast þar sem ég þarf að ákveða mig endanlega og ég kvíði henni. Er hræddur um að sjá á eftir þessu eða hinu sem að fylgir auðvitað öllum erfiðum ákvörðunum. Hvað ætti ég að gera?

Hörður
Aðalbjörg HalldórsdóttirVertu hér á klakanum!!! Þá getum ég, þú, Gréta og Anton hisst reglulega og djammað saman á Sevilla mátann...hehe ;)

Nei segji svona ;) Gangi þér vel að ákveða þig Hörður minn..skil vel að þetta sé erfitt :S

Lov jú;*
besos,
Adda xox
#1
28. apríl 2008 klukkan 23:30
hættu ad væla,:)
#2
30. apríl 2008 klukkan 16:48

Skrifa athugasemd