Hörđur hćttu ţessu bulli og komdu ţér ađ efninu! Hvađ eru spánverjar ađ segja um Pau Gasol!?!?!?!?!?Karnival, Katastrófur og Hans Egilsson
Góða kvöldið
Það er kominn tími á vikulegan blogg pistill, ekki örvænta samt, það má vel vera að ég fjölgi þeim þegar líða tekur á dvöl mína hérna. Allt yndislegt eins og áður fyrir þá sem vilja vita, takk fyrir að spyrja!
Seinasta vika var frekar róleg, ég fór í hinar ýmsu ferðir um borgina þar sem söfn voru skoðuð og fleira í þeim dúr, náði því merkilega afreki að snerta málverk eftir Goya. Nú á ég það í afrekabókina að hafa snert bæði Goya og Dalí málverk en það náðist víst á myndband minnir mig þegar ég snerti það í Vatíkaninu. Ég hripaði víst útúr mér einhverjum gullkornum í panikinu eftir að hafa kámað út málverkið, ég var skíthræddur um öryggisverðina.
"I just touched the Goya, let´s get the fuck out of here!"
´
Námið gengur ennþá mjög vel og í þessari viku fengum við hinn annan kennara sem að kennir seinni tímann á daginn sem er menningarsögutími. Hún er alveg eins og hinn kennarinn, virkilega orkumikil. Ég á enn eftir að hitta fúlan og leiðinlegan kennara í þessum skóla. Spænskan gengur bara eins og hún gengur, erum að læra þátíðirnar núna sem er strögl en það kemur vonandi með kalda vatninu. Bekkurinn minn er vægast sagt fjölbreytilegur, við höfum írskan skrípimyndateiknara, bandaríska hjúkrunarkonu (ekki hjúggu Arnar), belgískan stoner (sem er meistari), kenýska nunnu, kanadískan landamæravörð og rússneskan besservisser. Alveg ótrúlega sérstakur hópur á allan hátt en mjög samheldinn og góður. Svo eru auðvitað þær Erin og Margrét í bekknum líka.
Á föstudaginn fórum við vinahópurinn saman á sýrlenskan Huukah bar sem fyrir þá sem ekki vita eru vatnspípur sem að sett er í ávaxtablandað tóbak og svo reykt. Ég fékk mér þetta fyrst með strákunum út í Bosníu sælla minninga og þetta var semsagt í annað skiptið. Fræg mynd er einhvers staðar til af Geira í Palestínu með eina slíka pípu. Eftir það var aðeins kíkt út á lífið en það var þó bara rólegt samt.
Á fimmtudaginn tókum við hópurinn í skólanum þá ákvörðun að skella okkur á Karnival í Cadiz, sem er lítil háskólaborg við ströndina svo klukkutíma í burtu. Eina reglan sem að gildir á henni er að allir verða að vera í búning sem að skapar virkilega líflega og skemmtilega stemmingu. Það var auðvitað farið í búningaleit og ég fann mér þennan líka flotta Casanova búning með hárkollu og öllu. Tarka var það frumlegur að kaupa sér Páfabúning og Kanadjöfullinn keypti sér arababúning! Frekar fjölbreytilegur hópur og stelpurnar voru allar klæddar sem einhverjar þýskar þernur eða eitthvað, kunni ekki alveg skil á því.
Við vorum öll mætt á vistina í skólanum kl 4 á laugardeginum og byrjuð að klæða okkur í búningana, þeir voru vægast sagt skrautlegir, sérstaklega fannst mér páfinn vera alveg magnaður. Rútan átti að fara kl 5 þannig að við þurftum að rölta í gegnum Sevilla (þar sem ekkert karnival var) í búningunum.
Þetta minnti mig óneitanlega á þegar ég skildist við Dimmisjónhópinn í Kringlunni kl 6 á föstudegi klæddur sem rómverskur skylmingaþræll! ÞAÐ var vandræðalegt! Fór upp að einhverjum aumingja manni og spurði hann hvort hann hefði séð einhverja eins og mig, og hann svaraði fremur aumingjalega "Nei vinur, ég hef engan séð eins og þig". Því næst reyndi ég að sannfæra hann um að það væru í raun og veru fleiri skylmingaþrælar á gangi um Kringlunni, að ég væri ekki bara einhver vitleysingur að vappa um Kringluna á föstudegi í fullum skrúða. Hann trúði mér vart! "Jájá vinur"
En við komum allavega á rútustöðina rétt fyrir 5 þar sem Tarka lendi í fremur vandræðalegu atviki þegar að þrjár gamlar nunnur komu gangandi á móti okkur og hann klæddur sem páfinn með bjór í hendi, hann náði þó að fela sig rétt í tæka tíð.
Við vorum ekki komin til Cadiz fyrr en um 9 leytið vegna rútuseinkana en það var hinsvegar alveg ótrúlega gaman, Tarka labbaði um og blessaði alla, mjög fyndið. Ég hef aldrei séð svona mikið af fólki, þetta var alveg fáranlegt! Er ekki alveg með töluna á því en það var allavega há! Við röltum um bæinn og hittum fólk, fengum tapas, teygðum vín, sátum svo, drukkum og sváfum á ströndinni þangað til sólin kom upp en rútan okkar fór ekki fyrr en um níuleytið um morguninn. Frábær ferð.
Eins og gefur að skilja þá fór sunnudagurinn að mestu leytið í svefn og annað eins hangs.
Planið framundan er frekar loðið, mikið af því sama held ég bara. Sól og stemming líklegast! Ég keypti mér gítar í gær á 5000 kr í notaðri búð rétt hjá leikvangnum, hann var í ágætis standi fyrir utan að það vantaði stengi í hann en ég var ekki lengi að redda því. Er að fara í Flamengo gítar tíma í næstu viku og ætla að reyna að læra hvernig á að spila undir Flamengo dansi. Svo er líka .planið. að fara á leik um helgina en Eiður Smári og félagar í Barcelona eru að koma í bæinn, ódýrustu miðarnir eru reyndar 70 evrur þannig að það verður erfitt að fá einhvern með sér á því verði. Væri samt gaman sko!
Svo er auðvitað ferðin til Marakkó sem að ég held ég hafi ekki minnst á, hún er í byrjun apríl. Svolítið í hana ennþá reyndar. Þetta er 5 daga ferð til Tangier og það verður farið með hópinn inn í Sahara eyðimörkina og gist þar í eina nótt, ætti að verða ansi fróðlegt. Sagði mér reyndar maður hérna um daginn að eyðimörkin væri ekkert sérstök í Marakkó, eins og ég ætti að geta dæmt um það! "Nei mér fannst hún betri í Alsír". Hlakka bara til að koma þangað, loksins ný heimsálfa eftir allt þetta Evrópuskrölt.
En fyrir þá sem að vita um gott og ódýrt hótel í miðborg Barcelona þá mega þeir endilega senda mér email á hoddiunnst@hotmail.com
Ég er í mesta basli með að finna hótel handa okkur Huldu fyrir páskavikuna og öll hjálp væri vel þegin.
Ég ætla enda þetta á "hlutum" vikunnar. Var að spá í að hafa svona smá skemmtilegheit í lok hvers pistils til að létta aðeins lundina, kannski ummæli vikunnar, lag vikunnar, maður vikunnar og ljóð vikunnar. Vale?
Í þessari viku ætla ég að hafa ummæli vikunnar (þurfa ekki endilega að vera sögð í vikunni) frá manni vikunnar. Maður vikunnar er Hans Egilsson pabbi eins besta vinar míns. Þvílík uppspretta af sögum sem þessi maður er, hann hefur skilið ófáan manninn liggjandi í gólfinu af hlátri. Það var alltaf viss spenna sem að fylgdi því að fara upp í Hrafnaklettinn til Heiðars þegar maður var krakki, hvaða endemis vitleysu myndi hann Hansi taka upp á þessa vikuna! Það gleyma víst fáir gullkornunum úr afmælum Heiðar í gegnum tíðina. En núna seinustu ár þegar maður var orðinn stundum eins og húsgagn þarna á Kveldúlfsgötunni þá fór maður virkilega að taka eftir því hvað þessi maður er alveg fáranlega fyndinn! Ég man í 60 afmælinu hans pabba þá skildi hann alla eftir grenjandi í salnum, eins í afmælinu hjá Silla um daginn, gleymi því ekki þegar fór kliður um salinn þegar að Hansi var kynntur sem næsti ræðumaður. Sögur hans af Silla, Steina Jóru, Vidda bakara og öllum þessu gæjum eru alveg hreint ótrúlega fyndnar. Hansi fær þann heiður að vera maður vikunar og hann fær einnig ummæli vikunnar sem ég held að aðeins valinn hópur átti sig á, en það er allt í góðu!
Maður Vikunnar: Hans Egilsson
Ummæli Vikunnar: "Nei þetta var bara Gunnhildur" - Sagt á Dússabar kvöldið fyrir Evrópureisuna 2006
Lag Vikunnar: "Morning Yearning"- Með meistara Ben Harper! Write that down
Ljóð Vikunnar:
Bláir eru dalir þínir
Bláir eru dalir þínir
byggð mín í norðrinu
heiður er þinn vorhiminn
hljóðar eru nætur þínar
létt falla öldurnar
að innskerjum
- hvít eru tröf þeirra
Þöglar eru heiðar þínar
byggð mín í norðrinu
Huldur býr í fossgljúfri
saumar sólargull
í silfurfestur vatnsdropanna
Sæl verður gleymskan
undir grasi þínu
byggð mín í norðrinu
því sælt er að gleyma
í fangi þess
maður elskar
Ó bláir eru dalir þínir
byggð mín í norðrinu
(Hannes Pétursson)
Bið að heilsa heim
Hörður
Hörđur hćttu ţessu bulli og komdu ţér ađ efninu! Hvađ eru spánverjar ađ segja um Pau Gasol!?!?!?!?!?Svo máttu bæta við skúrki vikunnar: Allan Fall, fyrir að vera ekki skynsamari á síðustu mínútum bikarleiksins gegn Fjölni. (svo er maður um leið búinn að fyrigefa honum vegna einhverrar no-look / behind the back sendingu + and1. Samt leiðinlegt sko!)
Og keyptirðu gítar í notaðri búð? Hvurslags búð var það eiginlega,og var gítarinn kannski nýr? Var þetta svipuð aðstaða eins og þegar það kom stormur inni í bílnum en gott veður úti, og við allir kappklæddir, hehe.
Og að lokum, meistari Megas: Gulir eru taumar þínir, hland mitt í pissuskálinni
Casanova búningur segiru, djöfulsins wannabe
Já, og sambandi við gistingu, þá mæli ég með www.couchsurfing.com (ætti líka að virka í Marakkó ef þú hefur hugrekkið í það)
... og ég vil ekki heyra neitt "huuuuuu" bara gera þetta (mun ódýrara).
Það er alveg rétt hjá þér og talandi um þa held ég að það sé kominn tími á að þú farir að hlusta á þín eigin ráð for once
Ég bíð alltaf spennt eftir næsta pistli..=) Þú, Casanova.. ekki amalegt :D hehe.. Þú geymir búninginn og heldur "grímupartý" þegar þú kemur suður í skólann ;) hehe..´
Hafðu það gott elskan..
og vil enda þetta hjá mér ad segja ad kommentid hans Heidars aka " Mariposa" ótrúlega leidilegt komment :)
bid ad heilsa
Arnar el jeffe
Áfram Borgarnes