Aðalvalmynd

Auglýsing

Kominn Heim

27. apríl 2008 klukkan 16:03
Þá er ég kominn aftur til Íslands eftir yndislegan tíma í Sevilla, mikið af nýju fólki sem maður kynntist og frábærir vinir sem maður á vonandi eftir að halda sambandi við
.
Nú er ég bara að undirbúa mig fyrir stúdentspróf og verður veisla líklegast haldin 24. maí næstkomandi ef að allt gengur að óskum. Heimkoman var frábær og það var yndislegt að hitta vini mína og fjölskyldu aftur. Við strákarnir hittumst hérna heima hjá mér á fimmtudaginn og eyddum svo frábæru kvöldi uppá Vinakaffi hjá Geir eftir lokun þar sem hann dældi í okkur frönskum súkkulaðikökum og bjór. Mjög gaman.

Nú þjáist ég af algerum valkvíða, er búinn að flakka á milli svona 1000 sinnum um hvað ég eigi að gera í sumar, mér stendur til boða að fara aftur út í byrjun júní og vinna á Spáni sem fararstjóri. Það er auðvitað frábært tækifæri sem að býðst eflaust ekki oft og gæti opnað mér margar dyr ef ég vildi leggja þetta fyrir mig sem sumarvinnu í framtíðinni, einnig myndi það hjálpa mér að bæta spænskuna mína.
Hinn möguleikinn er svo að vera hérna heima með öllum þeim aragrúa að fólki sem mér þykir vænt um og vinna á golfvellinum í Borgarnesi og svo hugsanlega á Vinakaffi á kvöldin og um helgar. Einnig mjög góður kostur þar sem í sumar munum við vinirnir allir vera hér með tölu, það er eitthvað sem hefur ekki gerst lengi og mun eflaust ekki gerast aftur miðað við allt það flakk sem er á okkur. Þannig að ég veit bara ekki hvað ég á að gera, stundin nálgast þar sem ég þarf að ákveða mig endanlega og ég kvíði henni. Er hræddur um að sjá á eftir þessu eða hinu sem að fylgir auðvitað öllum erfiðum ákvörðunum. Hvað ætti ég að gera?

Hörður

Diario de Sevilla part II

31. mars 2008 klukkan 16:36

Nú held ég að það sé löngu kominn tími á að ég fari að skrifa eitthvað niður á þetta blessaða blogg mitt. Það hefur liðið langur tími síðan ég settist niður og sagði fréttir af mínu daglega lífi hérna í Sevillaborg. Meira en mánuður held ég, íslenskan er farin aðeins að hverfa í þoku þannig að ef að málfar verður eitthvað spes þá leiði þið það bara hjá ykkur.

Borgin er eins og alltaf yndisleg, mér finnst ég alltaf vera að uppgötva nýja hluti eða þá sjá gamla hluti í fallegra ljósi eftir að tekið hefur að vora. Búið að hleypa tímanum fram um einn klukkutíma þannig að það er bjart alveg til 9 á kvöldin og er borgin sérstaklega falleg niður við ána í næturhúminu. Við erum búnir að koma okkur upp aðstöðu til að spila körfubolta þar félagarnir og fórum þar fyrst í seinustu viku og það var virkilega hressandi að koma aðeins við bolta aftur. Ég mæti ferskur inn í sumarstreetballið í maí.

Tungumálið gengur vel þó mér finnist auðvitað alltaf að ég gæti verið að gera meira, æfi mig rosalega mikið á því bara að hugsa á spænsku og er það núna orðið bara fast í hausnum á mér. Verður erfitt að fara skipta aftur þegar ég kem heim, sé mig fyrir mér bullandi spænsku við afgreiðslukonuna í Hyrnunni þegar ég kem heim eins og ég held að Arnar hafi gert þegar hann kom heim J Ég fékk ansi skemmtilegan póst um daginn frá starfsmannastjóra Heimsferða þar sem hann tjáði mér að ég gæti fengið þar vinnu í sumar, svo hringdi hann daginn eftir og sagði að ég þyrfti að fara niður til Malaga líklegast, í viðtal hjá fararstjórum sem eru þar til að þeir geti athugað spænskukunnáttuna þannig að ég er á fullu að undirbúa mig fyrir það núna. Þá myndi ég fara út í lok maí og vera úti í sumar þannig ég myndi bara vera heima í einn mánuð. Það verður samt gott að hitta alla aftur, eftir 23 daga!

Í þarseinustu viku kom Hulda til mín í heimsókn og ég held að ég sé ekkert að ýkja þegar ég segi að það var alveg ótrúleg vika. Ég fór niður til Malaga á föstudegi og skráði okkur inná hótelið sem að var í Torremolinos rétt fyrir utan Malaga. Ég þurfti síðan bara að gjöra svo vel og hanga þar einn fyrstu nóttina þar sem fluginu frá Íslandi var endalaust seinkað. Þau lentu svo um 9 leytið á laugardagsmorgninum og ég var mættur ferskur útá flugvöll að taka á móti henni. Það var sérstök upplifun að sjá hana aftur eftir 2 mánuði en alveg yndisleg. Síðan tókum við rútu með fullt af Íslendingum niður til Torremolinos og ég hélt ég myndi bara springa í rútunni, allir að tala íslensku, það var frekar sérstakt. Voru nokkrir greinilega sjóaðir sólarstrandafarar þarna, gamlir í heppunni hvað það varðar. Ekkert endilega ferðast mikið en hafa séð allt þegar kemur að sólarströndunum! Einn þeirra kom með ansi skemmtilega frasa á leiðinni tilbaka.

Hótelið sem við vorum á var frábært og á mjög flottum stað, alveg á milli miðbæjarins og strandarinnar. Það er óhætt að segja að við höfum slappað vel af þessa viku, lágum á ströndinni og í sundlaugargarðinum, röltum um allt, fórum til Malaga og Marbella að versla, fínt útað borða á hverju kvöldi og borðuðum aðeins of mikið af ís. Ég er ekki með tölu yfir allar búðirnar sem við fórum inní en ég hafði bara gaman af því auðvitað :D Svo var alltaf tekin keppni um kvöldið í annaðhvort billjarð, þythokkí, golfi eða körfu og ég held hún hafi eiginlega alltaf unnið mig. Ég kenndi því auðvitað um að ég væri ómeðvitað að leyfa henni að vinna til að særa hana ekki en það fór fyrir lítið! Tapaði meira segja einu sinni í svona körfuboltavél fyrir henni! Hún er reyndar með nokkuð solid ömmuskot, verður að viðurkennast!

Heimkoman aftur til Sevilla var frekar sérstök þar sem Semana Santa var í gangi. Það er hátið sem haldin er yfir páskavikuna þar sem líkneski eru borin úr kirkjum víðsvegar að um borgina og inn í dómkirkjuna. Þetta er voðalega spes allt saman og var fljótt bara þreytandi. Búningarnir eru þannig gerðir að þeir myndu láta svartan mann væta sig af genatískum ótta. Hvítir sloppar með hvítum hettum af hætti ónefndra bandarískra haturssamtaka. Þetta var svo sem flott að sjá en þar sem það voru rúm milljón manns hérna í borginni og allt pakkað af túristum þá varð þetta fljótt þreytt. Borgin var alveg gjörsamlega í rúst á mánudaginn fyrir viku þegar öll herlegheitin voru búin.

Mér leið samt undarlega eins og ég væri að koma heim þegar ég kom aftur frá Malaga og ég viðurkenni að það verður skrýtið að fara héðan. Flestir eru komnir inn á sínar seinustu vikur og maður er byrjaður að þurfa að kveðja góða vini sína sem er frekar erfitt. Ég þekki það af fyrri reynslu að þrátt fyrir ítrekuð loforð um heimsóknir vítt og breitt um heiminn þá endar það nú oftast þannig að hver fer bara sína leið eins sorglega og það hljómar. En ég á eflaust eftir að lofa engu að síður upp í ermina á mér að ég muni koma til Bandaríkjana og Bretlands og Hollands og Belgíu og Indónesíu og Kóreu og allra þessa staða en það er aldrei að vita.

Laugardagurinn var ansi sérstakur, byrjaði frekar dauflega í léttri þynnku og meðfylgjandi mat á local bar með strákunum. Stefndi í að vera bara rólegur laugardagur þegar að Jack hringdi í mig rétt fyrir sjö og spurði mig hvort ég vildi ekki koma með honum Derek og Martin á Betis-Barcelona sem átti að byrja eftir rúmar klukkutíma. Ég hélt það nú!! Taldi það líklegt að hann hafi meint að hann ætti aukamiða sem ég gæti fengið. Þannig að ég dreif mig út og náði í leigubíl (sem er btw alltaf miklu erfiðara þegar maður er að drífa sig), lenti líka á þessum frábæra leigubílstjóra sem ég spjallaði við um Ísland (a la Geiri) alla leiðina og um fótbolta og loftslagsmálin og Rúnar Óla og bara allan pakkann. Það endaði með því að hann lét mig fá kortið sitt og sagði mér bara að  hringja í sig ef mig vantaði leigubíl einhvern tímann, reglulega fínn náungi. En ég kom allavega á Betis-leikvanginn 10 mínútum fyrir leik og hringdi í Jack og spurði hann hvar þeir væru! Þá voru þeir að alveg hinum megin að prútta við einhvern gamlan kall um miða inná leikinn. Hann var semsagt ekkert með miða og ætlaði bara að láta það reddast! Ég hitti þá og þennan gamla kall sem að seldi okkur miða á 50 evrur 5 mínútum áður en leikurinn byrjaði. Minnugur frægs simpsons þáttar þar sem svipaðir miðar voru prentaðir á kexköku lét ég gamla manninn fylgja okkur að hliðinu þannig við gætum lamið hann ef hann var að svíkja okkur (djók kannski meira hua hann). En það reyndist allt í góðu og við þutum upp stigann inn á völlinn og blasti þá við okkur þessi líka frábæru sæti í 6. röð fyrir aftan annað markið! Leikurinn hófs svo og fólkið virtist ekkert sérstaklega vongott enda Betis eitt af lélegustu liðum deildarinnar og Barcelona eitt það besta í Evrópu með gæja eins og Henry, Eto, Puyol, Ronaldinho og auðvitað Eið Smára sem var reyndar á bekknum í þessum leik. Hinn 17 ára gamli Bojan skoraði fyrsta markið fyrir þá og mér fannst það sérstaklega minnistætt þar sem gamli kallinn við hliðina á mér öskraði þá „He llamado tu madre“ eða „Ég var að hringja á mömmu þína“ því að samkvæmt spænskum lögum þá má hann ekki vera úti svona seint!  Eto bætti við öðru marki og þá upphófst baulið á heimamenn, það var svoleiðis hraunað yfir þá, allt sem þeir gerðu var bara ömurlegt! Gamli kallinn sagði mér að þetta væri það versta sem hann hefði séð til Betis og þá var mikið sagt því þessi gamli kall var gamall með áherslu.

Í seinni hálfleik mætti hinsvegar bara eitthvað allt annað lið inná völlinn, Odonkor kom inn fyrir hinn ótrúlega lélega fyrrum Liverpool mann Mark Gonzales og við það breyttist allt. Edu byrjaði á að minnka muninn 1-2 beint fyrir framan okkur með laglegu skallamarki, mikið fagnað! Þá hringdu Arnar og Sölvi og meðan þeir voru í símanum fékk Betis víti og gat jafnað, fólk ætlaði ekki að trúa þessu! En Valdes náði að verja og strákarnir lögðu á, svo bara 2 mínútum síðar skoraði Juanito og staðan 2-2!! Svo til að toppa allt þá skoraði Edu aftur nokkrum mínútum síðar og leikvangurinn bara sprakk! Áhorfendur þyrptust inná völlinn og það þurfti að stoppa leikinn í smátíma meðan allir fóru aftur í sætin sín. Þvílikur leikur sem þetta var og stemmingin eftir hann var engu síðri, söngurinn glumdi alveg fram á nótt! Nú veit ég ekki með hvoru liðinu ég á að halda, Sevilla eða Betis! Meira ruglið

En ég ætla ekki að skrifa meira í dag, ég fer núna að skrifa meira reglulega ef það er einhver enn að lesa. Endilega kommentið eða látið heyra í ykkur á annan hátt. Arnar ég veit að þetta er of langt fyrir þig en reyndu allavega. Smá effort!

Enda þetta á nokkrum myndum svona til gamans.



Ég og Gréta að fíflast eitthvað



Tarka, Adda og ég


Allur CLIC hópurinn


Hörður







 

Diario de Sevilla

23. mars 2008 klukkan 22:40
Skellti inn myndum úr ferðinni til Torremolinos inná síðuna hér til vinstri. Það eru fleiri væntanlegar frá einhverjum djömmum hérna í Sevilla.

Búið að vera frábær vika!

Nýr pistill er svo í farvatninu og verður tilbúinn á næstu dögum. Mikið frá að segja þannig að þið verðið bara að bíða spennt.

Kem heim 22. apríl þannig að það er rétt um mánuður í það, gengisfelling og flera spilar inn í og ég ákvað að stytta ferðina um 2 vikur. Það verður að hafa það. Fer svo hugsanlega aftur út í sumar, vonum það besta.

Hafið það gott

Hörður

Algerlegt

04. mars 2008 klukkan 23:19
Þetta er búið að vera ótrúlegur dagur! Ég ætla ekki að blogga um það sem liðið er heldur aðeins um daginn í dag.

Ég gekk í skólann í dag undir dynjandi kórsöng frá tyrkneskum fótboltabullum sem mættir voru hingað til Sevilla til að fylgjast með sínu liði, Fenerbache, mæta heimamönnum í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Þessir menn voru komnir vel í glas kl 10 í morgun og það var aðdáunarvert að fylgjast með eljusemi þeirra við að trufla kennsluna í miðbænum og syngja allan þennan tíma en guð minn góður hvað mig var farið að hlakka til að sjá MITT lið rústa þeim og slá þá út úr keppninni. Aldrei áður hef ég fundið fyrir eins mikillri samkennd fyrir einu liði eins og Sevilla í kvöld, ekki síðan að Sindri Grétarsson setti tvö kvikindi gegn Leiftri árið 1997. Ég er ekki upprunalega frá Akranesi og finn því ekki fyrir því sama og Skagamenn þegar þeir horfa á ÍA spila, ég er heldur ekki frá Liverpool þó ég haldi með þeim en í kvöld var ég frá Sevilla og studdi þá af öllum mínum lífs og sálarkröftum.

Við félagarnir vorum mættir á barinn um hálf átta leytið til að tryggja okkur örugg sæti, staðurinn var orðinn pakkfullur korteri síðar og leikurinn gat hafist. Allt byrjaði vel fyrir mína menn og staðan var orðin 2-0 eftir 10 mínútur. Ég sneri mér að Jack vini mínum og gerði álíka handabendingar og Vince nokkur Carter gerði í troðslukeppninni árið 2000! IT´S OVER!

Tyrkirnir minnkuðu muninn 20 mín síðar en Kanotue setti gull af marki rétt fyrir hálfleik og 3-1 var staðan og allt virtist vera auðvelt fyrir Sevilla menn.
Korteri fyrir leikslok skoruðu svo tyrkirnir og sendu leikinn í framlengingu, þögn sló yfir troðfullan barinn og fólk ætlaði ekki að trúa sínum eigin augun! Sevilla var búið að ráða lögum og lofum allan leikinn (Bjarni Fel) og ekkert virtist geta eyðilagt það! En jæja framlenging eða fraleggingen á hollensku. Það var ekkert annað í spilunum en sigur!

Eftir hálftíma af tíðindalausum fótbolta var gripið til vítaspyrnukeppni þar sem allt var undir. Sæti í 8 liða úrslitum og möguleikar á því að spila gegn langbestu liðum í Evrópu! Liverpool, Arsenal, Barcelona, Manchester, Chelsea!
En allt kom fyrir ekki! Vítaspyrnukeppnin sjálf er mestöll í móðu fyrir mér, faðmlög og grátur við ókunnugar persónur, tap og svekkelsi! Ég á erfitt með að ímynda mér hvernig gömlu mönnunum sem að hafa horft á þetta lið í 40 ár leið! Þetta var stærsti leikur í sögu félagsins og þeir glundruðu honum frá sér.
Það voru þung spor hingað heim og enn þyngri sláttur fingra á þetta blessaða lyklaborð! Nú heyri ég í Tyrkjunum fagna niður á torgi. Vona þeir fái Liverpool í 8 liða og "mínir menn" slátri þeim!
Þetta var svakalegt, gjörsamlegt, jafnvel algerlegt!

Takk fyrir mig

Hörður


Bara Aðeins

24. febrúar 2008 klukkan 19:16
Sæl veriði öll heima á Íslandi, það er allt gott að frétta héðan af Spáni.

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna þá kemur því miður enginn pistill þessa vikunna en ég mun reyna að bæta það upp með vonandi einhverju skemmtilegu í næstu viku. Annars er allt mjög fínt og ég bið bara að heilsa öllum heima, hafiði það sem allra best.

Hörður

Valentínus Valentínusarson

16. febrúar 2008 klukkan 17:03
Godan daginn heim til Islands,vikupistillinn hefur adeins dregist a langinn tessa vikunna en tad er tho ekki vegna ovenju mikillra anna heldur frekar vegna aettgengrar leti, sat oft vid tolvuna og ihugadi ad skrifa eitthvad inn en gerdi thad tho aldrei. Buid ad vera lika frekar roleg vika tannig ad kannski ekki mikid fra ad segja.

Bidst afsokunar a skort a islenskum stofum en their erlendu verda tvi midur bara ad duga i tetta skiptid.

Fyrir tha sem vilja vita tha komst eg ekki a leik Sevilla og Barcelona um seinustu helgi sem var mikid svekkelsi, eg hafdist vonast eftir ad komast en fann engan med mer sem var tilbuinn ad borga asett verd fyrir midanna. Reyndar drulladi Belginn tvi utur ser eftir leikinn ad hann hefdi verid tilbuinn ad fara en tvi midur fyrir okkur var tad einum degi of seint! Eg hef tho sett mer thad markmid ad fara a meistaradeildarleik sem er herna eftir 2-3 vikur.

Spaenskan gengur vonum framar og hafdi hostpabbi minn thad a ordi yfir hadegisverdinum adan ad hann hefdi aldrei haft nemanda hja ser sem vaeri farinn ad tala svo hratt og skyrt eftir svo stuttan tima, audvitad eru fullt af villum stundum hja mer en eg er tho allavega ad reyna. Eg kom heim ur skolanum a midvikudaginn og settist nidur til ad fa mer ad borda og byrjadi bara allt i einu ad tala an tess ad hugsa vid folkid, thad var mognud tilfinning. Oftast naer hef eg turft ad hugsa setningarnar ut adur en eg segi thaer en tarna kom tetta bara osjalfratt og eg get vart lyst tvi hvad mer leid vel eftir tad. Er ad komast upp a tridja stig i naestu viku tannig ad tetta gengur bara mjog vel.

Einhverjir hafa verid ad kvarta yfir skorti a (mis)djupum paelingum um tilveruna i tessum bloggpistlum minum en eg hef akvedid ad taka mer alfarid fri fra tess konar pistlum um hrid og reyna frekar bara ad segja sem mest fra tvi sem er ad gerast herna uti svona fyrir nanustu fjolskyldu og vini. Mer lika lidur thad vel ad eg hef i raun ekkert ad kvarta yfir og er ad njota lidandi stundar til hins ytrasta. (Solvi)

A midvikudaginn var dagur San Valentin haldinn hatidlegur herna i Sevilla borg og var mikid hullumhae a klubbum borgarinnar, vid felagarnir letum okkur ekki vanta og slegid var upp partyi a einni af vist skolans tar sem elitan var maett a svaedid. Thad voru spiladir drykkjuleikir, sungin donsk drykkjulog og fleira skemmtilegt. Tetta for allt saman fram i mestu hofsemi tvi tad var ju einu sinni midvikudagur! Sidan var haldid a einn af fjolmorgum klubbum borgarinnar thar sem var dansad eftir fremsta megni, Hordur i "efri koju" let sja sig undir lok kvoldsins og sletti nokkrum vel voldum frosum i andlitin a einhverjum ameriskum stelpum. Tad skilja tetta eflaust ekki allir! :)

A manudaginn a seinustu viku let sja sig nytt folk i skolanum og a medal teirra var einn ljoshaerdur strakur sem kom upp ad mer strax tann sama dag, eg spyrdi hann vitaskuld kurteisislega hvadan hann vaeri a spaensku og hann tjadi mer tad ad hann vaeri fra Islandi. Eg hefì audvitad getad fiflast adeins i honum en sleppti tvi og vid erum ordnir hinir mestu matar, eg er loksins kominn med raektarfelaga sem er alveg agaetis tilbreyting. Var farid ad leidast svolitid ad fara tangad einn sifellt og hafa engan til ad tala vid.

Eg og Hulda akvadum ad breyta ferdinni okkar og vera bara frekar a Malaga i 6 daga og fara svo til Sevilla i einn dag, vid gistum a tessu mjog fina hoteli i 5 naetur sem er alveg vid strondina og med sundlaug og ollu. Tetta er mun betra fyrirkomulag tar sem tad eru bara tveir timar med lest hedan til Malaga tannig ad eg fer bara tangad og tek a moti henni og svo er tad bara afsloppun i 6 daga! Va lifid gaeti ekki ordid yndislegra. Sidan fae eg taekifaeri til ad syna henni borgina i einn dag adur en hun tarf ad fljuga heim!

Nuna i augnablikinu er eg a leidinni ut a flugvoll ad hitta hana Valdisi Thoru litlu systir Fridmeyjar en hun er ad koma til Sevilla med golflandslidinu i einhverja aefingarferd. Eg get samt bara hitt hana i svona 10 minutur en hun er med poka handa mer ad heiman med sma doti sem mig vantadi, fotum, islensku nammi, bokum og tess hattar og kannski einhverjum gjofum ef eg er godur strakur, tad vita vonandi allir hvada dagur er a manudaginn! En eg verd tvi vist ad fara ad tjota og hafa tetta stutt tessa vikuna.

Hvet alla sem lesa endilega til ad senda mer email einhvern timann, tad er alltaf gaman ad fa linu ad heiman. hoddiunnst@hotmail.com

Madur/Menn vikunnar: Menn vikunnar i tetta skiptid eiga tad svo sannarlega skilid fyrir allt sem teir hafa til brunns ad bera ma eiginlega segja. Tetta eru teir fedgar Torsteinn Benjaminsson og Arnar Torsteinsson. Steini Ben og litli Steini Ben. Teir eru miklir addaendur bloggsins tannig ad eg akvad ad gefa teim fedgum tad ad gjof ad vera valdir menn vikunnar og teir fa vitaskuld verdlaun i mai.

Ummaeli vikunnar: Tad kemur einnig fra somu monnum tegar teir satu a laugardagskvoldid og horfdu a leik Sevilla og Barcelona a Kveldulfsgotunni.
Arnar: "¿Serdu Hord tarna einhvers stadar?"
Steini: "Ja mer synist glitta i tittlinginn a honum tarna einhversstadar"
Snillingar

Ljod vikunnar: Eg vona ad einhverjir taki ser tima i ad lesa tessi ljod tvi tau eru ekki adeins gullfalleg heldur einnig geta tau verid laerdomsrik a margan hatt. Tad kemur enginn hofundur ad tessu, bara ljod.

Eg heyri hvíslad í eyra mér ord
Frá tessum manni hann er vitrari en ég
Hann býdur mer saeti vid tetta allsnaegtabord
Tar finnur tu alls sem tu oskar

Tar liggja kvenmenn i formi epla
Og lokka mig akafar til sin
Eins og Adam i Eden eg freistast
og gradugur seilist eftir bita

I huga mer lostinn er hilling
ad dyggdugra lifi eg leita
Tessi forbodna synd,tessi spilling
Brjost notud sem beita
En min breyskja er sterkari en dyggdin
sem svo hugrakkur eg reyndi ad verja

Tvi rek eg tennurnar djupt inni eplid
og svolgra i mig safann sem fylgir
Lostinn hefur ad endingu sigrad
Mitt skituga edli hefur unnid


Ps: Myndir eru a leidinni, ein islenska stelpan rekur liggur vid Papparazi tjonustu en hun er i einhverju veseni vid ad koma myndunum inn a netid. Taer verda vonandi komnar bradlega.

Hordur




Karnival, Katastrófur og Hans Egilsson

05. febrúar 2008 klukkan 20:13

Góða kvöldið

Það er kominn tími á vikulegan blogg pistill, ekki örvænta samt, það má vel vera að ég fjölgi þeim þegar líða tekur á dvöl mína hérna. Allt yndislegt eins og áður fyrir þá sem vilja vita, takk fyrir að spyrja!

Seinasta vika var frekar róleg, ég fór í hinar ýmsu ferðir um borgina þar sem söfn voru skoðuð og fleira í þeim dúr, náði því merkilega afreki að snerta málverk eftir Goya. Nú á ég það í afrekabókina að hafa snert bæði Goya og Dalí málverk en það náðist víst á myndband minnir mig þegar ég snerti það í Vatíkaninu. Ég hripaði víst útúr mér einhverjum gullkornum í panikinu eftir að hafa kámað út málverkið, ég var skíthræddur um öryggisverðina.

"I just touched the Goya, let´s get the fuck out of here!"
´
Námið gengur ennþá mjög vel og í þessari viku fengum við hinn annan kennara sem að kennir seinni tímann á daginn sem er menningarsögutími. Hún er alveg eins og hinn kennarinn, virkilega orkumikil. Ég á enn eftir að hitta fúlan og leiðinlegan kennara í þessum skóla. Spænskan gengur bara eins og hún gengur, erum að læra þátíðirnar núna sem er strögl en það kemur vonandi með kalda vatninu. Bekkurinn minn er vægast sagt fjölbreytilegur, við höfum írskan skrípimyndateiknara, bandaríska hjúkrunarkonu (ekki hjúggu Arnar), belgískan stoner (sem er meistari), kenýska nunnu, kanadískan landamæravörð og rússneskan besservisser. Alveg ótrúlega sérstakur hópur á allan hátt en mjög samheldinn og góður. Svo eru auðvitað þær Erin og Margrét í bekknum líka.

Á föstudaginn fórum við vinahópurinn saman á sýrlenskan Huukah bar sem fyrir þá sem ekki vita eru vatnspípur sem að sett er í ávaxtablandað tóbak og svo reykt. Ég fékk mér þetta fyrst með strákunum út í Bosníu sælla minninga og þetta var semsagt í annað skiptið. Fræg mynd er einhvers staðar til af Geira í Palestínu með eina slíka pípu. Eftir það var aðeins kíkt út á lífið en það var þó bara rólegt samt.

Á fimmtudaginn tókum við hópurinn í skólanum þá ákvörðun að skella okkur á Karnival í Cadiz, sem er lítil háskólaborg við ströndina svo klukkutíma í burtu. Eina reglan sem að gildir á henni er að allir verða að vera í búning sem að skapar virkilega líflega og skemmtilega stemmingu. Það var auðvitað farið í búningaleit og ég fann mér þennan líka flotta Casanova búning með hárkollu og öllu. Tarka var það frumlegur að kaupa sér Páfabúning og Kanadjöfullinn keypti sér arababúning! Frekar fjölbreytilegur hópur og stelpurnar voru allar klæddar sem einhverjar þýskar þernur eða eitthvað, kunni ekki alveg skil á því.
Við vorum öll mætt á vistina í skólanum kl 4 á laugardeginum og byrjuð að klæða okkur í búningana, þeir voru vægast sagt skrautlegir, sérstaklega fannst mér páfinn vera alveg magnaður. Rútan átti að fara kl 5 þannig að við þurftum að rölta í gegnum Sevilla (þar sem ekkert karnival var) í búningunum.
Þetta minnti mig óneitanlega á þegar ég skildist við Dimmisjónhópinn í Kringlunni kl 6 á föstudegi klæddur sem rómverskur skylmingaþræll! ÞAÐ var vandræðalegt! Fór upp að einhverjum aumingja manni og spurði hann hvort hann hefði séð einhverja eins og mig, og hann svaraði fremur aumingjalega "Nei vinur, ég hef engan séð eins og þig". Því næst reyndi ég að sannfæra hann um að það væru í raun og veru fleiri skylmingaþrælar á gangi um Kringlunni, að ég væri ekki bara einhver vitleysingur að vappa um Kringluna á föstudegi í fullum skrúða. Hann trúði mér vart! "Jájá vinur"

En við komum allavega á rútustöðina rétt fyrir 5 þar sem Tarka lendi í fremur vandræðalegu atviki þegar að þrjár gamlar nunnur komu gangandi á móti okkur og hann klæddur sem páfinn með bjór í hendi, hann náði þó að fela sig rétt í tæka tíð.
Við vorum ekki komin til Cadiz fyrr en um 9 leytið vegna rútuseinkana en það var hinsvegar alveg ótrúlega gaman, Tarka labbaði um og blessaði alla, mjög fyndið. Ég hef aldrei séð svona mikið af fólki, þetta var alveg fáranlegt! Er ekki alveg með töluna á því en það var allavega há! Við röltum um bæinn og hittum fólk, fengum tapas, teygðum vín, sátum svo, drukkum og sváfum á ströndinni þangað til sólin kom upp en rútan okkar fór ekki fyrr en um níuleytið um morguninn. Frábær ferð.

Eins og gefur að skilja þá fór sunnudagurinn að mestu leytið í svefn og annað eins hangs.

Planið framundan er frekar loðið, mikið af því sama held ég bara. Sól og stemming líklegast! Ég keypti mér gítar í gær á 5000 kr í notaðri búð rétt hjá leikvangnum, hann var í ágætis standi fyrir utan að það vantaði stengi í hann en ég var ekki lengi að redda því. Er að fara í Flamengo gítar tíma í næstu viku og ætla að reyna að læra hvernig á að spila undir Flamengo dansi. Svo er líka .planið. að fara á leik um helgina en Eiður Smári og félagar í Barcelona eru að koma í bæinn, ódýrustu miðarnir eru reyndar 70 evrur þannig að það verður erfitt að fá einhvern með sér á því verði. Væri samt gaman sko! 
Svo er auðvitað ferðin til Marakkó sem að ég held ég hafi ekki minnst á, hún er í byrjun apríl. Svolítið í hana ennþá reyndar. Þetta er 5 daga ferð til Tangier og það verður farið með hópinn inn í Sahara eyðimörkina og gist þar í eina nótt, ætti að verða ansi fróðlegt. Sagði mér reyndar maður hérna um daginn að eyðimörkin væri ekkert sérstök í Marakkó, eins og ég ætti að geta dæmt um það! "Nei mér fannst hún betri í Alsír". Hlakka bara til að koma þangað, loksins ný heimsálfa eftir allt þetta Evrópuskrölt. 

En fyrir þá sem að vita um gott og ódýrt hótel í miðborg Barcelona þá mega þeir endilega senda mér email á
hoddiunnst@hotmail.com 
Ég er í mesta basli með að finna hótel handa okkur Huldu fyrir páskavikuna og öll hjálp væri vel þegin.

Ég ætla enda þetta á "hlutum" vikunnar. Var að spá í að hafa svona smá skemmtilegheit í lok hvers pistils til að létta aðeins lundina, kannski ummæli vikunnar, lag vikunnar, maður vikunnar og ljóð vikunnar. Vale?

Í þessari viku ætla ég að hafa ummæli vikunnar (þurfa ekki endilega að vera sögð í vikunni) frá manni vikunnar. Maður vikunnar er Hans Egilsson pabbi eins besta vinar míns. Þvílík uppspretta af sögum sem þessi maður er, hann hefur skilið ófáan manninn liggjandi í gólfinu af hlátri. Það var alltaf viss spenna sem að fylgdi því að fara upp í Hrafnaklettinn til Heiðars þegar maður var krakki, hvaða endemis vitleysu myndi hann Hansi taka upp á þessa vikuna! Það gleyma víst fáir gullkornunum úr afmælum Heiðar í gegnum tíðina. En núna seinustu ár þegar maður var orðinn stundum eins og húsgagn þarna á Kveldúlfsgötunni þá fór maður virkilega að taka eftir því hvað þessi maður er alveg fáranlega fyndinn! Ég man í 60 afmælinu hans pabba þá skildi hann alla eftir grenjandi í salnum, eins í afmælinu hjá Silla um daginn, gleymi því ekki þegar fór kliður um salinn þegar að Hansi var kynntur sem næsti ræðumaður. Sögur hans af Silla, Steina Jóru, Vidda bakara og öllum þessu gæjum eru alveg hreint ótrúlega fyndnar. Hansi fær þann heiður að vera maður vikunar og hann fær einnig ummæli vikunnar sem ég held að aðeins valinn hópur átti sig á, en það er allt í góðu!

Maður Vikunnar: Hans Egilsson

Ummæli Vikunnar:
  "Nei þetta var bara Gunnhildur" - Sagt á Dússabar kvöldið fyrir Evrópureisuna 2006

Lag Vikunnar:  "Morning Yearning"- Með meistara Ben Harper! Write that down

Ljóð Vikunnar: 
                                                 
Bláir eru dalir þínir


Bláir eru dalir þínir
byggð mín í norðrinu
heiður er þinn vorhiminn
hljóðar eru nætur þínar
létt falla öldurnar
að innskerjum
- hvít eru tröf þeirra

Þöglar eru heiðar þínar
byggð mín í norðrinu
Huldur býr í fossgljúfri
saumar sólargull
í silfurfestur vatnsdropanna

Sæl verður gleymskan
undir grasi þínu
byggð mín í norðrinu
því sælt er að gleyma
í fangi þess
maður elskar

Ó bláir eru dalir þínir
byggð mín í norðrinu
                                         
(Hannes Pétursson)


Bið að heilsa heim

Hörður










Flamengo og Búddhalíkneski

29. janúar 2008 klukkan 23:07

Góða kvöldið

Ég get ekki annað sagt en að ég sé að finna mig betur í þessari undursömu borg, mannlífið, menningin, fjölskyldan, maturinn, skólinn allt saman er frábært og ég get ekki lýst því hversu frábærir seinustu dagar hafa verið.

Tungumálið: 
Það er alltaf að sýjast meira og meira inn í hausinn á mér, er eins og áður sagði farinn að skilja allt og tjáningin er kominn á annað stig, ég er hættur að nýtast við ítölskuna og er farinn að nota aðeins þá spænsku sem ég er búinn að læra til að tjá mig. Við erum líka farin hægt og bítandi að skipta yfir í spænskuna þegar við erum úti á kvöldin, hún virðist auðvitað alltaf bætast eftir því sem maður drekkur fleiri bjóra, það er auðvitað bara gaman.

Fjölskyldan:
 Fólkið sem ég bý hjá er mjög hjálpsamt og þolinmótt að reyna að hlusta á mig er ég segi þeim frá deginum mínum á kvöldin. Það er samt gaman frá því að segja að þegar þau sjá að ég er ekki alveg að skilja þá segja þau setninguna bara hraðar og með meiri áherslum, reyna lítið sem ekkert að nota myndmál til að reyna að útskýra mál sitt frekar sem er pínu skondið. Það bættist við enn einn meðlimurinn, amerísk stelpa sem að flutti hérna inn á sunnudaginn seinasta, hún er í sama skóla og ég, hef samt lítið sem ekkert séð hana. Ég hef reyndar verið mjög lítið heima í þessari viku þar sem ég er aðallega búin að vera með krökkunum úr skólanum.

Skólinn:
Það sem er hvað best við þennan skóla er bæði staðsetningin á honum og einnig hvað hann er hæfilega stór. Það virðast allir vera farnir að þekkja alla (a.m.k. þeir sem verða hér í einhvern tíma) og kemur öllum rosalega vel saman. Skólinn bíður líka upp á allskyns atburði á hverjum degi og þar á meðal skoðunarferðir í borginni og einnig stuttar kynningarferðir um héraðið. Ég fór á þriðjudag í skoðunarferð um dómkirjuna með spænskum guide, maður lærði alveg heilmikið á því. T.d. það að kistan sem talin er innihalda jarðneskar leifar Kólombus var opnuð í hittífyrra og gerðir á þeim rannsóknir sem að leiddu það í ljós að þetta "gæti" í raun verið hann! Mér finnst þetta þó allt saman voða loðið. :)
Á fimmtudaginn var svo Intercambio dagur þar sem allur skólinn hittist á bar um 9 leytið og fólk leitast eftir því að kynnast betur eftir einn, tvo bjóra. Eftir það fórum við stór hópur saman á milli nokkura klúbba og vorum að eitthvað fram eftir nóttu, ótrúlega gaman.
Við náðum einnig að hafa upp í kvikmyndahúsi sem að sýnir myndir á upprunalega tungumálinu með spænskum texta, fór í bíó tvisvar í seinustu viku! =) Miðvikudaginn var það Darjeeling Limited sem ég get ekki annað en mælt með, tónlistin, kvikmyndatakan og allt útlit myndarinnar var svo retró að maður fékk næstum hroll. Lög með Kinks hljómuðu í bakgrunninum og myndin var um lestarleiðangur þriggja bræðra sem gátu á engan hátt treyst hver öðrum, ég tengdi mig við myndina á ótalmargan hátt. Á föstudaginn var það svo myndin Atonement sem er ástarmynd sem gerist á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar, virkilega falleg mynd.

Vinirnir: Ég er búinn að kynnast alveg virkilega fínum krökkum hérna í skólanum sem ég er búinn að vera með næstum upp á hvern einasta dag, John, Erin og Maggie eru frá USA, Tarko er frá Bretlandi og Gréta og Adda eru frá Gaulverjabæ og Þorlákshöfn. Síðan erum við alltaf í kringum aðra Bandaríkjamenn sem eru í skólanum líka. Á laugardaginn fórum við útað borða á veitingastað hérna í hverfinu mínu þar sem að allir bestu og ódýrustu barirnir eru þar. Við gengum svo á milli bara allt kvöldið og bandarísku stelpurnar tældu spænska barþjóna í þeim tilgangi að fá fría drykki, ég naut auðvitað góðs af því og drakk svo gott sem frítt lungað af kvöldinu. Svo um tvöleytið var það Buddha Del Mar sem beið okkar en það er risaklúbbur á 4 hæðum. Þar eru búddhalíkneski útum allt og ég verð bara að viðurkenna að ég næ ekki tengingunni. Við vorum þar alveg til 6 um morguninn að skemmta okkur og svo var bara heim í rúm. Sunnudagur fór svo í lestur og skrif, er að klára 4 bókina núna á 20 dögum, það besta sem ég geri eftir skóla á daginn er að fara annaðhvort upp á þak á skólanum þar sem eru sólbekkir og heitur pottur og fíneri eða á torgið stóra fyrir utan skólann og lesa bók og fara í smá sólbað. Til að stríða ykkur eskimóunum heima þá var 20+ hiti og heiðskýrt hér alla seinustu viku sem var yndislegt.  Það fannst allavega okkur Íslendingunum heitt en Spánverjarnir kippa sér auðvitað ekki upp við slíkt og því erum við einu asnarnir í sólbaði á þakinu!!

Menningin: Gærkvöldið var frábært, fórum 5 saman útað borða í þessu ótrúlega fallega gyðingahverfi sem að eru ekkert nema .ótrúlega. þröngar götur og fallegir en "dýrir" (á spænskan mælikvarða) veitingastaðir. Við fórum því bara á klassískan Tapasbar og átum og drukkum og sögðum sögur. Svo fórum við á ekta spænskan Flamengo bar þar sem sýningar eru á hverjum mánudegi, við vorum reyndar þau fyrstu á staðinn en ég veit ekki hvernig ég á að lýsa þessum stað, voru svona langir bekkir þvert yfir herbergið og arinn frammi fyrir og svo bar á endanum og svo var lítið svið fyrir miðju gólfinu. Ekki ósvipað matskálanum í Vatnaskógi fyrir þá sem þangað hafa komið en þó með aðeins meiri spænskum svolítið harðneskjulegra stílbragði. Mjög fallegt! Við biðum þar eftir sýninguna og hún hófst um 11leytið og þá var staðurinn orðinn stappaður, örugglega svona 200 manns sem að sátu og biðu í ofvæni eftir fallegri spænskri blómarós og fylgdarliði sem áttu að sjá um skemmtunina. Fylgdarliðið mætti, tveir menn, einn spilaði á gamlan klassískan gítar og einn söng. Dansarinn var hinsvegar pínulítið öðruvísi en ég hafði ímyndað mér, hún minnti meira á japanskan súmóglímukappa heldur en spænskan, exótískan flamengódansara, það var óneitanlega karlmannlegt yfirbragð á andliti hennar þó svo að ég hafi ekki komið auga á barkakýli en þrýstinn barmur hennar var svo áberandi að ekki fór á milli mála að um konu var að ræða, en guð minn góður þetta var stór kona. En dansað gat hún, það var ótrúlegt að fylgjast með henni hreyfa sig nánast algerlega í takt við seiðandi tónlistina, það var næstum dáleiðandi að fylgjast með því hvernig ístran á henni dillaði sér með þokkafullum mjöðmunum, nánast semetrískar færslur frá einni hlið til annarar, allt samkvæmt kúnstarinnar reglum. Þetta var ótrúlega flott! Ég klappaði og blístraði sem mest ég mátti og eftir á fann ég einkennilega kynferðislega löngun í þessa stóru konu eftir að hafa séð hana hreyfa sig svona. Haha nei ég er að fíflast, þetta var samt rosalega flott hjá henni og maður gekk alveg með hroll út.
Það sem það var mánudagur einnig þá hringdi ég í Huldu mína en við heyrumst alltaf á mánudögum í síma og það var alveg ótrúlega gott að heyra í henni og toppaði alveg frábæran dag. :)

Þannig að það er bara allt gott að frétta af mér héðan af Spáni fyrir þá sem vilja vita, væri gaman að fá comment frá fólki sem að kemur inn á síðuna, það er alltaf fullt af fólki að kíkja inn en ekki allir sem skrifa, alltaf bara Arnar (ekki það að ég dýrki þig ekki) sem að skrifar! Love Hurts, It does!
Jæja ég er hættur þessari vitleysu og farinn að sofa. Endum þetta á tveimur fallegum ljóðum sem þægilegt er að lesa fyrir svefninn. 



Ég vildi-


 


Ég vildi að ég gæti andað yl
inn í þig, vinur minn
Ég vildi að ég gæti klappað þig og kysst
kjark í svipinn þinn

Ég vildi að ég gæti sungið sól
í særða hjartað þitt
sem að gæti gefið þér
guðdómsaflið sitt

Ég vildi ég gæti vakið upp
vonir í þinni sál
og látið óma, enn á ný
allt þitt hjartans mál

Ég vildi ég gæti gert þig barn,
sem gréti brot sín lágt
og vaggað þér í væran svefn
-ég veit, hvað þú átt bágt

Á meðan ég gæti sagt þér sögu,
- en sagan er á þá leið
að til er sá Guð, sem gleymir engum
en gætir vor best í neyð

Ég hlýt að vitja þín, vinur minn
og verma þinn hjartastað,
af því ég veit, að enginn maður
annar gerir það

(Jóhannes úr Kötlum)



Jólakvöld



 

Nú skal leika á langspilið veika
og lífsins minnast í kveld
hjartanu orna við hljóma forna
og heilagan jólaeld
meðan norðurljós kvika og blástjörnur blika
og boganum mínum ég veld

Ég blundaði hljóður við brjóst þín, móðir
sem blómið um lágnættið
þú söngst um mig kvæði; við sungum bæði
um sakleysi, ástir og frið
Þú gafst mér þann eld, sem ég ennþá í kveld
get ornað hjartanu við

Þú hófst mína sál yfir hégóma og tál
og hug mínum lyftir mót sól
Þú gafst mér þá þrá sem ég göfgasta á,
og gleði, sem aldrei kól
Ef ég hallaði mér að hjarta þér,
var mér hlýtt; þar var alltaf skjól

En útþráin seyddi mig ungan og leyddi
um ótroðin skógarstíg
Og nú vil ég syngja og sál mína yngja
með söngvum um lágnættið hljótt
og hvísla í norður ástarorðum
meðan allt er kyrrt og rótt
og láta mig dreyma um ljósin heima
sem loga hjá mömmu í nótt

(Davíð Stefánsson)


Góða nótt kæru vinir :*

Hörður




 

Myndir

21. janúar 2008 klukkan 13:36
Kominn með myndir loksins og var víst búinn að lofa að henda þeim inn :)


Ég og Meg á brúnni góðu


Ég, Roxie og Meredith nýbúinn með Tequila minnir mig, eins og sést á svipnum á mér


Mér fannst ótrúlega fyndið að láta allar myndatökur koma mér á óvart


Ég og Roxie að éta!


Kominn á diskótekið, það var ágætt


Ég og Meg


"Það er svo gaman!"



Minni á færsluna hérna fyrir neðan! :)

Hörður

Lamba

20. janúar 2008 klukkan 18:38

Tvi midur verd eg ad skrifa tessa faerslu a ameriskt lyklabord, frekar pirrandi!
Tha er eg buinn ad vera herna i 11 daga og tessi vika er buin ad vera alveg lygilega fljot ad lida. Tvi meira sem eg kynnist af borginni tvi meira likar mer vid hana. Eg er buinn ad fara utum allt nuna seinustu daga og skoda mikid, aetla ad kasta inn nokkrum myndum herna ad nedan.
Eg byrjadi i skolanum a manudaginn og var tad mikil upplifun, allir timarnir fara ad sjalfsogdu fram a spaensku en sem betur fer er eg mjog heppinn med kennara. Timarnir eru otrulega famennir, erum bara 8 i timum sem eru kenndir i alveg serstaklega litlum og loftlausum skolastofum. Tad getur komid ser afar illa tegar tad fer ad hitna af einhverju radi. Allir teir nemendur sem eg er med i tima nuna eru bara her i 3-4 vikur tannig ad eg verd ad fa nyja samnemendur a nokkra vikna fresti. Tad er svosem i godu, nuna er eg adallega med tjodverjum og japonum i tima sem er mjog fint, virkilega skemmtilegt lid. Heima vid gengur allt otrulega vel, vid erum ordin tarna fjogur eins og litil fjolskylda og mer skilst ad tad se ad baetast enn nemandinn enn inn a heimilid. Eg skil ekki hvernig tau afbera tetta :)

I seinustu viku kom eg mer upp vana a ad fara ut a hverju einasta kvoldi og reyna ad uppgotva eitthvad nytt herna i midbaenum, sum kvold var tad kannski flottur veitingastadur eda toff bar en a midvikudagskvoldid akvad eg ad fara ad leita ad torgi sem eg hafdi sed a myndum a netinu. Tetta leit allavega vel ut tar en vandamalid var ad eg hafdi ekki hugmynd um i hvada att eg atti ad fara eda einu sinni hvort ad tetta torg vaeri i midbaenum. Eftir talsvert rolt glitti i tvo turna sem mer fannst eg kannast vid af myndunum og eg rolti i attina ad teim. Klukkan var ordinn talsvert margt og ekki mikid af folki a gotunum fyrir utan orfaa rona sem ad svoludu fikn sinni a gangstettabrunum med nokkrum vel volgum. Eg for inn um litid op a hlid annars turnsins og tegar inn um tad var komid blasti tetta lika gullfallega torg vid mer. Eg gjorsamlega missti andlitid, og tad besta var ad tad var ekki sala a tvi. Mer fannst eins og hafdi uppgotvad einhverja tofraverold sem ad enginn annar vissi af. Eg for ut a mitt torgid og settist nidur vid forlatan gosbrunn og opnadi tar bok, sat thar i dagodan tima og naut stundarinnar. Tetta torg heitir vist Plaza de Espana og her ad nedan ma sja mynd af tvi. Eg kom inn hja turninum tarna haegra megin.

A tessum roltum um borgina var eg alltaf rekast a Cervantes hitt og tetta, Hotel Cervantes, Bar Cervantes og ég veit ekki hvad og hvad. Eg var tvi ad vonast eftir tvi ad hann vaeri hedan en svo er vist ekki, tetta lid sem rekur tetta eru bara einhverjir ofga addaendur. Hann skrifadi reyndar einu sinni sonnetu um borgina og tetta gaeti verid tess vegna. Eg man ad tegar Geiri for ut tha sagdist hann aetla ad vera tangad til hann gaeti lesid bokina a spaensku, einhvern veginn efast eg um ad tad hafi tekist hja honum. Tetta er tvilikur dodrandur. Eg sa hana einmitt a islensku i frihofninni adur en eg for ut og aetladi ad kaupa hana en haetti einhverja hluta vegna vid, ef ad einhvern langar ad gefa mer otrulega hugulsama afmaelisgjof tha ma hann senda hana ut 18 feb. :)

A fimmtudagskvoldid forum vid "fjolskyldan" svo utad borda a Tapasbar herna a torginu vid hlidina a, eftir tad forum vid a hina ymsu bari herna i hverfinu og bjorar, kokteilar, raudvin og tequila var drukkid af mikillri afergju adur en stefnan var sett a einhverja klubba i midbaenum. Vid forum reyndar bara 3 tar sem Meredith nennti vist ekki. Vid forum a einhvad triggja haeda diskotek i midbaenum og a efstu haedinni voru vist adallega utlendingar. Vid forum tangad og tad var bara mjog gaman, mjog serstakt ad fara ut a lifid tegar tad er skoli daginn eftir. Vid donsudum tho eitthvad frameftir. Eg for eitt skiptid a barinn og fekk mer bjor og tha gjorsamlega hurfu stelpurnar i pitt af grodum spaenskum bidlurum. Teir eru alveg rugl agengir, eg settist bara nidur og fylgidist med ur fjarlaegd, tad var mjog fyndid. Eg man ad tad var einhver med myndavel um kvoldid og um leid og kemst yfir taer myndir tha kasta eg teim herna inn.

Um helgina var eg svo einn heima i tessu risahusi og naut timans vel. Stelpurnar foru til Madrid og foreldrarnir herna uppi fjollin ad slappa af. Eg og kotturinn Lola vorum tvi ein eftir i husinu, tad var agaett. Í gaerkvoldi for eg svo utad borda a flottum veitingastad herna i midbaenum, leyfi mer tetta svona einu sinni i viku, for svo og hringdi i Arnar en eg var ekkert buinn ad heyra i honum sidan fyrsta daginn sem eg kom ut, tad var mjog hressandi. Annars er eg bara buinn ad hafa tad nadugt ad horfa a handboltann a netinu en pabbi var svo almennilegur ad leyfa mer ad nota kreditkortid sitt til ad horfa a leiki a netinu, hehe eg var vist buinn ad vera godur strakur :) Mikil mismunun sem fylgir tvi ad velja ser tann kost ad vera ekki med kreditkort, tegar eg og Hulda forum a Sogu i desember var ekki haegt ad stadfesta ponutunina a herberginu an tess ad vera med kreditkort. Mer fannst tad nu nog en svo tegar eg pantadi flugid hja Express tha VARD eg ad vera med kreditkort. Eg spurdi hvort eg maetti ekki bara millifaera thar sem eg vildi ekki eyda meira en eg afla en tha sagdi hun ad sa moguleiki vaeri ekki fyrir hendi. Eg yrdi annadhvort ad borga med kreditkorti eda koma tangad innan 24 tima fra pontun og borga. Mismunun ad bestu gerd, mer finnst ad Runar aetti ad fara med tetta i blodin. "Tetta finnst mer orettlatt" (Med yktri Runarsroddu)



En ja eg aetla kannski bara ad ljuka tessu med tvi ad setja inn nokkrar fallegar myndir af borginni sem eg fann a google, fann reyndar enga af husinu minu en tad var kannski otarfleg bjartsyni. Fann nokkrar af hverfinu i kring samt og domkirkjunni og svona, gaman :) 
Lifid heil!

Hordur


Tetta er domkirkjan fagra og illa lyktandi hestakerrurnar sem ad tar bida eftir ad vera brukadar.

Turninn fallegi sem eg klifradi uppi a laugardaginn var, hann var byggdur sem aukahluti af domkirkjunni en hun var upprunalega moska eins og sest kannski litillega a tessari mynd ef ad imyndunaraflinu er leyft ad leika ser.

Alamillo brúin sem byggd var fyrir heimssýninguna 1992 sem ad mer skilst ad systir min hafi farid a. Hmm skrytid. En ja tessi bru hefur verid kollud Golden Gate Evropu, hef ekki hugmynd um af hverju en jaeja. Hun er rett hja husinu minu, mjog falleg.

Og svo i lokin yfirlit yfir borgina ad kvoldi til en mer finnst hun langfallegust tha. Sest tarna vel staerdin a domkirkjunni. Eg a heima inn tessa gotu og til vinstri ef einhver er a leidinni til Sevilla (Valdis), Hernan Cortez 1. Gaman svo ad segja fra tvi ad tad er bar i turninum tarna, mjog toff.